ICELAND VISION

Gervigreind · Ráðgjöf · Kennsla

Hvernig getur gervigreind nýst þér?

Ég hjálpa þér að átta þig á hvað gervigreind getur gert og hvað hentar þínum verkefnum. Námskeið og ráðgjöf fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Fjallgarður við Vatnajökul með skýjabandi

01 / Næsta námskeið

Gervigreind: frá spjalli til verka

Notarðu gervigreind helst til að spyrja spurninga eða leita upplýsinga? Á námskeiðinu sýni ég hvernig hún getur tekið að sér verkefni og hjálpað þér í vinnunni. Engrar forkunnáttu er þörf og þú þarft hvorki að setja upp forrit né kaupa áskrift.

  • Fim. 15. október2026
  • 16:00–19:303,5 klst. með hléi
  • Nýheimar, efri hæðHöfn · taktu með fartölvu
  • 19.900 kr.kannaðu rétt þinn til styrks hjá stéttarfélaginu þínu
  • Grunnatriðin útskýrð á mannamáli: líkön, samhengi, tengingar við önnur kerfi og ábyrg notkun
  • Kynning á ChatGPT, Codex, Claude, Claude Cowork, Claude Code og Grok Bot, með dæmum úr eigin rekstri: hvað hentar hverju verkefni?
  • Verkefni til að prófa heima, ráð um hvernig þú heldur áfram og kynning á framhaldsnámskeiði

Viltu læra meira? Námskeið fyrir lengra komna. Dagsetning verður tilkynnt fljótlega.

02 / Þjónusta

Hvað er í boði?

Byrjaðu á að kynna þér möguleikana og haltu svo áfram á framhaldsnámskeið eða í vinnustofu. Ég býð líka ráðgjöf fyrir einstaklinga og fyrirtæki þar sem við tökum fyrir ykkar eigin verkefni.

01

Byrjendanámskeið

Fyrir þig sem vilt kynnast gervigreind og fá yfirsýn yfir það sem er í boði.

  • Þú færð kynningu á grunnatriðum gervigreindar og því sem þarf að hafa í huga við notkun hennar
  • Við berum saman sex gervigreindarforrit og skoðum hvað hvert þeirra gerir vel
  • Þú færð hugmyndir að því hvað gæti nýst þér í vinnunni eða heima

Næsta námskeið: 15. október í Nýheimum

02

Námskeið fyrir lengra komna

Fyrir þig sem þekkir grunninn og vilt læra að búa til eigin lausnir með gervigreind.

  • Settu upp gervigreindaraðstoð sem sér um endurtekin verkefni í rekstrinum
  • Búðu til forrit, leiki eða verkfæri með aðstoð gervigreindar, án þess að þurfa að kunna forritun fyrir fram
  • Þróaðu eigin hugmynd og prófaðu hvort lausnin virkar eins og þú ætlaðir

Hentar þeim sem hafa lokið byrjendanámskeiðinu eða nota gervigreind daglega.
Næsta námskeið: Auglýst síðar

03

Vinnustofa

Vinnustofa fyrir þau sem hafa lokið námskeiði fyrir lengra komna. Þú kemur með eigin hugmynd eða verkefni og færð aðstoð við útfærsluna.

  • Þú vinnur að verkefni sem þú velur
  • Ég aðstoða þig þegar þú þarft á því að halda
  • Þú færð leiðbeiningar um hvernig þú getur haldið áfram á eigin spýtur

Næsta námskeið: Auglýst síðar

04

Fyrirtækjaráðgjöf

Ég hjálpa þínu fyrirtæki að finna hvar gervigreind getur nýst í rekstrinum og hvernig hægt er að taka hana í notkun. Oft liggja tækifærin í endurteknum verkefnum sem taka tíma frá öðru starfi.

Saman förum við yfir verkferla og dagleg störf hjá fyrirtækinu:

  • Finnum verkefni sem gervigreind getur sinnt að hluta eða öllu leyti
  • Skoðum hvernig hægt er að einfalda verkferla og draga úr handavinnu
  • Mótum vinnubrögð sem taka mið af öryggi og meðferð gagna
  • Kennum starfsfólki að nýta gervigreind við þau verkefni sem það sinnir

Byrjum á samtali
Ég býð upp á 30 mínútna ráðgjöf án endurgjalds. Við ræðum reksturinn, skoðum í hvað tíminn fer og hvar gervigreind gæti komið að gagni. Engin skuldbinding fylgir samtalinu.

05

Einkaráðgjöf

Við setjumst niður og förum yfir það sem þig langar að læra eða fá aðstoð við.

  • Fáðu aðstoð við Claude, Claude Code eða Claude Cowork
  • Við vinnum með þín eigin verkefni
  • Við gefum okkur þann tíma sem þú þarft og förum yfir það sem skiptir þig máli

03 / Um mig

Hver kennir?

Sindri Ragnarsson

Ég heiti Sindri Ragnarsson. Ég er með kennsluréttindi og hef lokið námskeiðinu Claude til árangurs hjá Akademías. Ég nota Claude, Claude Code og Claude Cowork daglega í eigin rekstri, Glacier Trips.

Ég hef notað gervigreind við bókhald, markaðssetningu og tölvupóst og til að búa til vefsíður og hugbúnað. Sú vinna hefur kennt mér hvar hún kemur að gagni, hvað þarf að yfirfara og hvenær betra er að fara aðrar leiðir.

Í kennslunni styðst ég við eigin reynslu og dæmi úr daglegri vinnu.

04 / Samband

Hafðu samband

Ertu með spurningu um námskeið eða ráðgjöf? Sendu mér línu og ég svara innan sólarhrings.

Nýheimar · 15. október · kl. 16:00

Skrá mig á námskeiðið